Friday, December 22, 2006

Í tilefni jóla: amerískar haframjöls- og rúsínusmákökur


Þetta eru svona smákökur sem eru stórar... þúveist... stórsmákaka. Ef kakan er gerð minni verður hún þurr og óspennandi, þær bara EIGA að vera pínu seigar og sá árangur næst aðeins með því að gera dáldið veglega klumpa á bökunarpappírnum. Svona golfkúlustærð cirka.
Uppskriftina fann ég eftir ítarlega leit á netinu fyrir allmörgum árum síðan. Margar mismunandi aðferðir og innihald í boði en eftir samanburð og pælingar miklar varð þessi uppskrift "mín" ;)
Gleðileg jól !



Amerískar Oatmeal-Raisin Cookies3 egg, léttþeytt
2,4 dl rúsínur
1 1/2 tsk vanilludropar
Þessu þrennu er blandað saman og látið standa í stofuhita í 1 klst

2,4 dl smjör (cirka 220 gr)
1,7 dl púðusykur
1,7 dl sykur
Hrært vel saman þartil verður að jafnri smjörblöndu

6 dl hveiti
1/2 tsk salt
1 tsk bökunarsódi
1 tsk kanil
Blandað saman við smjörblönduna og eggja-rúsínuhrærunni bætt við

4,8 dl haframjöl
Hrært saman við allt að lokum

Ágætlega stórar "klessur" eru settar á bökunarpappír með skeið. Má vera dálítið á milli hverrar kökur og gerðar örlítið minni en lokaútkoman á að vera því að þær fletjast út meðan þær eru að bakast. Bakað við 180° í 10-12 mínútur eða þartil fullbakaðar og farnar að taka lit.

1 comment:

Unknown said...

Þetta eru geggjaðar kökur! Slógu í gegn á mínu heimili og uppskriftin hreint ekki flókin þrátt fyrir langan innihaldslista.

Þessar kökur verða bakaðar aftur :-)